Fréttir

Fundur - Áríðandi
Mánudagurinn 31. maí 2010 eftir aron



Fundurinn sem átti að vera á morgun Þriðjudaginn 1.júní klukkan 20:00 færist yfir á Miðvikudaginn 2.júni á sama tíma klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í Fákafeni 11, skeifunni til húsa í Söngskóla Maríu Bjarkar. Keyrt er uppá húsið við hliðina á Videoheimum. Rætt verður um námskeið sumarsins ásamt því að raða í hópa. Léttar veitingar í boði Mountain Dew og ölgerðarinnar. Vonumst að allir sjái sér fært að mæta, þeir sem komast ekki látið vita með emaili á aron@aron66.is

 


(0) Athugasemdir


Álfsnes og MotoMos
Sunnudagurinn 9. maí 2010 eftir ossi



Tók góða æfingu í Álfsnesi seinnipartinn í dag. Brautin var aðeins blaut á köflum og þá helst uppstökk og lendingar á pöllunum en meira og minna fín og gott grip og fínn raki. Verður örugglega búin að þorna betur á morgun eða hinn. Á heimleiðinni kíktí ég við í Moto Mos bara rétt svona til að skoða hana

Við smelltum af nokkrum myndum í leiðinni sem hægt er að skoða með því að smella á linkinn "myndir" hér fyrir ofan

 


(1) Athugasemdir


Myndir frá Enduro Cross Country
Laugardagurinn 8. maí 2010 eftir ossi



Fyrsta keppni sumarsins var í Bolöldu í dag þar sem var keppt í því sem nú heitir Enduro Cross Country.  Smá þoka í restina skyggði ekkert á ánægju keppenda. Keppt var eftir nýju fyrirkomulagi og væri fróðlegt að vita hvernig það lagðist í fólk? Hvað fanst ykkur um keppnina?

En annars njótið bara myndanna sem þið finnið með því að smella á linkinn "myndir"

 


(1) Athugasemdir


Sumarnámskeið.
Mánudagurinn 3. maí 2010 eftir aron



Á morgun þirðjudaginn 4.maí er síðasti séns á að greiða sumarnámskeiðið fyrir þá sem eru skráðir. Eftir morgundaginn detta þeir út sem ekki eru búnir að borga, og aðrir sem eru á biðlista teknir inn í staðinn. Hér fyrir neðan koma greiðslupplýsingar, en þegar greitt er inná reikning þarf að taka fram kennitölu þess sem er verið að greiða fyrir í "skýringu". Sé verið að greiða fyrir fleiri en einn, þurfa allar kennitölurnar að koma fram í "skýringu". Einnig þarf að haka við að senda kvittun á email og sendist kvittunin á aron@aron66.is.

Reikningsnúmer: 515-26-390092
Kennitala: 050877-3969
Upphæð: 18.900

 


(1) Athugasemdir


Klausturs námskeið 2010
Þriðjudagurinn 20. apríl 2010 eftir aron



Við viljum vekja athygli okkar á „Klausturs námskeiðinu 2010“. Fyrir þá sem vilja ná sér í forskot á sæluna og mæta vel undirbúnir til leiks á klaustri, reynslunni ríkari að þá verðum við með þriggja daga námskeið dagana 11.(þri) - 13.(fim) og 15.(lau) Maí. Kennt er frá 18:00 – 20:00 virku dagana, og 10:00 – 12:00 á laugardeginum. Námskeiðið kostar 9.000 og er skráning hafin á aron@aron66.is flóknara en það er það nú ekki :) ATH! Námskeiðið er þó ekki einungis fyrir þá sem ætla að keppa á klaustri, öllum er frjálst að skrá sig.


(1) Athugasemdir


Hvernig á að wippa
Sunnudagurinn 18. apríl 2010 eftir ossi



Það er enginn maður með mönnum nú til dags nema kunna að wippa. Hér er stutt sýnikennsla í þessari merku list

 


(1) Athugasemdir


Thomas O´Connor
Miðvikudagurinn 7. apríl 2010 eftir ossi



Þetta er 16 ára strákur frá Texas sem eins og ótal margir aðrir á hans aldri stefna á atvinnumennsku í motocrossi. Kíkjum aðeins á hvað hann getur


(2) Athugasemdir


Smá video tips - Rutted turns
Sunnudagurinn 4. apríl 2010 eftir ossi




(1) Athugasemdir



Síða: 1 2 3 4 5 6 7 8 9