Fréttir
Villtu komast í alvöru form?
Miđvikudagurinn 28. október 2009 eftir aron
Villt þú komast í besta form lífs þíns? Þá er þetta rétta tækifærið. Strax í næstu viku fara af stað hin geysivinsælu þrek námskeið hjá Motocross Skólanum. CrossFitness er líkamsræktarprógramm sem er hannað af þeim Aroni og Össa hjá Motocross Skólanum en Aron er íslandsmeistari í Motocross árið 2009. CrossFitness námskeiðið er hannað til að koma motocross fólki í rétt form, en Motocross er talin önnur erfiðasta íþrótt í heimi. Svo ef þú ert í formi fyrir Motocross, þá ertu tilbúin í hvað sem er. CrossFitness námskeiðin fara fram tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 19:00. Æfingarnar eru í 2 tíma í senn, klukkutíma úti, og klukkutíma inni. Stílað er inná sprengikraft, mikið vöðvaþol og almennt úthald. Svo hvort sem þú villt verða íslandsmeistari í Motocross, ert almennur áhugamaður um líkamsrækt, er orðinn þreyttur á því að vera í lélegu formi, villt losna við aukakílóin, auka úthaldið, sprengikraftinn eða vöðvaþolið, að þá eru þetta réttu tímarnir fyrir þig. Prufu tími fer fram Þriðjudaginn 3.nóvember og byrjar svo fyrsti tími Fimmtudaginn 5.nóvember. Hvert námskeið er mánuð í senn og komast einungis 20 manns á námskeiðið mánuð hvern.
Skráning á CrossFitness námskeiðið 5.nóv - 1.des :
sendið email á: aron@aron66.is
Takið fram: nafn, kennitölu og símanúmer
Verð: 6.900 kr. Greiðist á staðnum
Skráning í prufutímann Þriðjudaginn 3.nóvember kl 19:00 :
sendið email á: aron@aron66.is
Takið fram: nafn, kennitölu, símanúmer og að þið ætlið í prufutímann.
Verð: Frír prufutími
ATH! Að einungis eru 20 laus pláss, svo að ef þeir sem vilja fara í prufutímann fyrst áður en þeir ákveða sig, að þá getum við ekki lofað að það verði laust eftir hann, þar sem við erum með takmarkað pláss undir æfingar.
Nitro mun niðurgreiða námskeiðið fyrir keppnisfólk Team Kawasaki, og kostar því einungis 5.900 kr. fyrir þá.
Staðsetning: Fákafen 11, Skeifunni. (Keyrt upp á bílaplan á milli húsanna)
Kv. Aron og Össi hjá Motocross Skólanum
(1) Athugasemdir
MYNDIR FRÁ ÁLFSNESI!!
Sunnudagurinn 26. júlí 2009 eftir ossi
Kíkið endilega á myndirnar frá Álfsneskeppninni á myndasíðunni okkar!

(2) Athugasemdir
Námskeiđ á Akureyri
Ţriđjudagurinn 16. júní 2009 eftir aron
Dagana 24. og 25.júní (mið og fim) verður Motocross Skólinn með námskeið á Akureyri. Námskeiðið fer fram á svæði KKA undir hlíðarfjalli. 12 manns komast á námskeiðið, og verður þeim hóp skipt í tvennt á milli tveggja kennara. Allir eru velkomnir á námskeiðið, svo lengi sem þeir kunni að taka af stað og skipta um gír. Kennt verður frá 13:00 - 17:00 báða dagana. Verð fyrir námskeiðið er 13.500 pr einstakling.
Skráning fer fram á aron@aron66.is
Það sem fram þarf að koma er:
-Nafn
-Símanúmer
-Tegund af hjóli
-Email

(1) Athugasemdir
MYNDIR FRÁ AKUREYRI!!
Mánudagurinn 1. júní 2009 eftir ossi
það eru komnar inn myndir frá motocrossinu á Akureyri. Jibbí!!!

(3) Athugasemdir
Byrjenda námskeiđ
Mánudagurinn 25. maí 2009 eftir aron
Í næstu viku fer af stað 3 daga byrjenda námskeið. Námskeiðið hefst Þriðjudaginn 2.júní. Kennt er Þriðjudag, Miðvikudag og Föstudag frá klukkan 14:00 - 17:00. Enn eru nokkur pláss laus. Námskeiðið kostar 17.900 krónur og fer fram í Bolöldu alla dagana. Um að gera að kynna sér málið og senda okkur línu á aron@aron66.is
(1) Athugasemdir
Myndir úr Enduro keppninni
Laugardagurinn 16. maí 2009 eftir aron
Komnar myndir frá Enduro keppninni úr Bolöldu í dag. Endilega kíkið í myndasafnið!

(1) Athugasemdir
Sauđárkrókur 14/5/2009
Föstudagurinn 15. maí 2009 eftir ossi
Nýjar myndir komnar inn frá því að við skruppum á krókinn á Fimmtudaginn í 19 stiga hita og sól !!

(3) Athugasemdir
Breytt verđskrá.
Miđvikudagurinn 13. maí 2009 eftir aron
Ný verðskrá hefur tekið gildi. Hægt er að sjá verðbreytingarnar undir "Námskeið"
(1) Athugasemdir
Síđa: 1 2 3 4 5 6 7 8 9