Fréttir

Mx203
Sunnudagurinn 10. maí 2009 eftir aron



Það eru tvö laus pláss eftir í MX203 námskeiðið sem fer fram 18.maí næstkomandi. Upplýsingar er að finna hérna inná síðunni undir "námskeið" eða í gegnum emailið aron@aron66.is . Námskeiðið verður haldið í Bolöldu


(9) Athugasemdir


Allt ađ gerast í Bolöldu
Miđvikudagurinn 6. maí 2009 eftir ossi



Það var margt um manninn í Bolöldu í kvöld enda fínasta veður og brautin að opna eftir endurbætur. Við kíktum upp eftir til að taka púlsinn á fólki og ekki annað að sjá en allir væru himin lifandi yfir að geta tekið vel á því.

Við smelltum nokkrum myndum í leiðinni sem hægt er að skoða í myndaalbúminu. Góða skemmtun!


(1) Athugasemdir


Sauđárkrókur
Mánudagurinn 4. maí 2009 eftir aron



Motocross Skólinn skellti sér á Sauðárkrók í gær, Sunnudaginn 3.Maí ásamt fríðu föruneyti. Við tókum sénsin á að renna norður þegar við sáum veðurspánna á laugardaginn. Það spáði rigningu um allt land, og þar sem flestar brautir voru illa á sig komnar hér fyrir sunnan ákváðum við að renna bara norður. Við fengum þetta blíðskaparveður, 10 stiga hita og sól og brautin var hreint út sagt frábær! Ég hvet alla til að renna norður á Krókinn sem fyrst og hjóla í brautinni þar á meðan brautirnar hérna eru að þorna. Fullt af myndum eru komnar í myndasafnið, endilega kíkjið á afraksturinn.

                                               

 


(4) Athugasemdir


Hjólaspjalliđ
Föstudagurinn 1. maí 2009 eftir aron



Motocross Skólinn tók létt viðtal við Sigurgeir Lúðvíksson, Akureyring og Motocross  ökumann með meiru. Sigurgeir hefur verið í sportinu síðan 2003 og oft verið í toppbaráttu í sínum flokkum. Sigurgeir hefur látið lítið fara fyrir sér undanfarin ár í Íslandsmeistaramótinu í motocross, en við heyrðum í kappanum og tókum stöðuna fyrir komandi sumar.

mxs.is: Sæll og blessaður Sigurgeir. Fyrir þá sem ekki vita hver þú ert, hvað geturu sagt okkur um þig?

      Sigurgeir: Ég heiti Sigurgeir Lúðvíksson, á 19.ári, bý á Akureyri og er kreppubarn í atvinnuleit sem stendur.

 

mxs.is: Hvenær byrjaðiru að hjóla ?

Sigurgeir: Ég byrjaði að hjóla árið 2003


mxs.is: Fyrsta keppni?

Sigurgeir: Fyrsta keppnin var 2 vikum eftir að ég fékk hjólið á Svalbarðseyri, gekk brösulega og ég var ekki alveg búinn að ná tökum á hjólinu, en skemmti mér samt konunglega.


mxs.is: Þú kepptir ekki allar keppnirnar í íslandsmótinu síðasta sumar, hvaða keppnir kepptiru í og hvernig gekk?

Sigurgeir: Ég keppti 2 keppnir á síðasta ári, á Akureyri og svo skellti ég mér á krókinn. Það gekk ágætlega á Akureyri, var hraðastur í æfingunum en sökum þess hvað maður var búinn að hjóla lítið náði ég ekki að fylgja því eftir nema nokkra hringi í keppninni en náði þó þriðja sætinu mér til mikillar furðu eftir að ég hafði yfirgefið svæðið fyrir verðlaunaafhendinguna.

Svo var það krókurinn og þar gekk allt á afturfótunum, það byrjaði þannig að tímatökusendirinn klikkaði í firra motoinu og ég var því ekki talinn með þar. Og svo stökk ég út fyrir braut í forystunni í því seinna og meiddi mig í únlið sem er búinn að vera meiddur í smá tíma. En alltaf jafn gaman samt.




mxs.is: Þú veist þá allavegana að þú hefur hraðann ennþá, hvað er planið fyrir sumarið?

Sigurgeir: Planið er að hjóla eins mikið og hægt er og keppa jafnvel eina eða tvær keppnir og vera í betra formi en í fyrra, mér hefur aldrei liðið jafn illa og síðustu hringina á Akureyri hehe.

mxs.is: Hehe, þú þarft að hætta í Búkollupizzunum og byrja á grænmetinu! Hvernig hjól ertu með?
Sigurgeir: Hehe já og ég sem er að fara að panta Greifapizzu! Ég er á 2006 Yamaha YZ250F ekki glænýtt en það stendur alltaf fyrir sínu og bilar aldrei! 7, 9, 13!

mxs.is: 
Hvað kaustu í alþingiskostningunum ?

      Sigurgeir: Ég var sá sem skeindi mér með kjörseðlinum


    mxs.is:
Það varst þú já. Það héldu allir að það hefði verið kona, er það bara útaf síða hárinu?
    Sigurgeir:
Ég fór og náði í eitthvað af gamla síða hárinu bara.

   

    mxs.is:
Hvort finnst þér meira sexý, Tedda eða Haukur ?
    Sigurgeir: Það er náttúrulega ekki hægt að velja þar á milli! Það lekur kynþokkinn af þeim báðum.

    mxs.is:
Ef þú þyrftir að fá þér tatto af einhverjum úr íslandsmótinu á bringuna, hvern myndiru velja?

    Sigurgeir: Baldvin #85


   mxs.is:
Hvers vegna?

   Sigurgeir: Hann gaf mér besta riding tip sem ég hef fengið, "Sigurgeir, prufaðu að keyra hraðar" og það bara gekk svona skrambi vel

   mxs.is:
Eitthvað að lokum, sem þér liggur á hjarta?

  Sigurgeir: Ég vil bara þakka þeim sem hafa stutt mig í gegnum árin, Mömmu og Pabba. Gunna Jak fyrir að keyra okkur á mót á Hreint Út bílnum og fyrir að lána okkur bílinn þegar hann kemst ekki sjálfur. Og þér fyrir aðtaka mig í fyrsta viðtalið mitt!

Já og Lúlla eldri bróður mínum fyrir að draga mig í ræktina!

Það vonandi skilar sér í sumar.


   mxs.is:
Þakka þér fyrir þinn tíma, svo sjáumst við hressir á ráslínunni í sumar í góðu formi, ekki satt?

   Sigurgeir: Að sjálfsögðu!


(2) Athugasemdir


Rapid Response
Föstudagurinn 1. maí 2009 eftir aron



Nú er brunaútsala á Rapid Response frá Ready Racing. Rapid Response er lítið stykki sem komið fyrir er í blöndungnum til að losna við kok í hjólinu og til að auka snerpu þegar þú gefur því inn. Ef þú villt fá betra viðbragð, og fá hjólið til að taka fyrr við sér þegar þú gefur því í botn, að þá er Rapid Response málið. Þetta munar helling og gerir hjólið mun skemmtilegra fyrir vikið. Nú fæst Rapid Response á 8000 kr. stykkið, en kostar held ég nálægt 20.000 útí búð. Um að gera að næla sér í eitt stykki fyrir sumarið, takmarkað magn er eftir. Frí heimsending hvert á land sem er, og samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Rapid Response passar í allar tegundir hjóla. Bjallið í Jóa í síma 699-0015 og nælið ykkur í eitt stykki!

 


(2) Athugasemdir


Nýtt - Nýtt - Nýtt - Nýtt
Mánudagurinn 27. apríl 2009 eftir aron



 

Einkaþjálfun. Nú höfum við ákveðið að færa út kvíarnar og bjóða einstaklingum
og vinahópum uppá persónulega einkaþjálfun. Upplýsingar um einkaþjálfunina eru hér
fyrir neðan, og einnig undir hnappnum "dagsskrá". 


Einkaþjálfun getur verið allt frá einum uppí fjóra einstaklinga. Tilvalið fyrir nokkra vini
að koma saman í tilsögn, einnig fyrir þá sem vilja ná smá forskoti á félagana
í hópnum að koma í nokkra einkatíma og fá öll leyni tipsin beint í æð. Kennslutími
er alla daga vikunnar, hvort sem um ræðir helgi eða virkan dag og getur verið hvaða
tíma dags (08-00 - 18:00) allt eftir þörfum hvers og eins. Við reynum eftir fremsta 
megni að komast til móts við þig, og ef einhver tímasetning hentar þér betur en önnur, 
að þá erum við mjög sveigjanlegir með alla tímasetningu. Hægt er að kaupa 2 tíma
til að byrja með og kosta þeir 6500 kr. 1500 kr. af því ganga svo uppí næsta námskeið
vilji viðkomandi halda áfram.

Start Pakki -
2 tímar
6500 kr,-
2 eða fleiri saman í hóp = 6.500 pr. einstakling
1500 kr. af því ganga uppí nýtt námskeið
vilji einstaklingurinn halda áfram.

Pakki A - 
6 tímar (3 dagar)
15000 kr,-
2 eða fleiri saman í hóp = 12.500 pr. einstakling

Pakki B -
10 tímar (5 dagar)
22000 kr,-
2 eða fleiri saman í hóp = 19.500 pr. einstakling

Pakki C -
16 tímar (8 dagar)
35000 kr,-
2 eða fleiri saman í hóp = 31.000 pr. einstakling

Pakki D -
20 tímar (10 dagar)
44.000
2 eða fleiri saman í hóp 39.000 pr. einstakling

 

*Allir tímar þarna á milli (t.d. 1-2 tímar í viðbót, eða 1-2 færri tímar)
kosta 2500 kr.klst. 

 


(1) Athugasemdir


Cross Fitness
Mánudagurinn 27. apríl 2009 eftir aron



Vegna gríðalegrar fyrirspurna höfum við ákveðið að framlengja líkamsræktarnámskeiðunum
um einn mánuð og verður því annað námskeið í Maí. Skráning er hafin og fer hún fram
á emailinu aron@aron66.is. Upplýsingar sem þurfa að koma fram við skráningu eru:

Nafn
Símanúmer
Email nemanda (ef sent er úr öðru en eigin emaili) 


(1) Athugasemdir


Myndir Ţorlákshöfn/Bolalda
Föstudagurinn 10. apríl 2009 eftir ossi



Nýjar myndir komnar inn undir myndir !!

 

 


(1) Athugasemdir



Síđa: 1 2 3 4 5 6 7 8 9