Fréttir
Sand námskeiđ
Mánudagurinn 6. apríl 2009 eftir aron

Finnst þér leiðilegt að hjóla í sandi? Er það vegna þess að sandurinn er svo erfiður? Dagana 11. og 12. Apríl nk. verður Motocross Skólinn með sandnámskeið í Þorlákshöfn þar sem farið verður yfir alla þá sandtækni sem við höfum yfir að búa. Farið verður yfir og stillt fyrir hvern og einn fjöðrun, en uppsetning á fjöðrun er mjög mikilvæg þegar kemur að sandakstri. Námskeiðið byrjar klukkan 14:00 og stendur til 17:00 báða dagana. Einungis 10 manns komast að, fyrstir skrá fyrstir fá. Tveir þjálfarar skipta hópnum í tvennt og verða því 5 og 5 í hóp svo að þjálfarar geti einbeitt sér meira að nemendum og að þeir fái meira útúr námskeiðinu.
Verð pr.- einstakling: 12.900 kr,-
skráning fer fram á aron@aron66.is
fram þarf að koma: nafn, kennitala, hjól
(1) Athugasemdir
Líkamsrćktarnámskeiđ #2
Sunnudagurinn 29. mars 2009 eftir aron
Nú er að hefjast nýtt námskeið í CrossFitness. CrossFitness er líkamsræktarnámskeið sem kemur þér í topp form fyrir sumarið. Þetta æfingkerfi reynir á alla þá vöðva sem þú notar þegar þú ert að hjóla. Það eru ekki nema tveir mánuðir í sumarið, svo nú fer hver að vera síðastur að koma sér í form fyrir sumarið! Fyrsta æfingin hefst á þriðjudaginn 31.mars. Skráning er hafin á mxs@mxs.is
P.s. email kerfið hefur verið bilað uppá síðkastið. Svo ef einhver hefur ekki verið að fá svör frá okkur að þá biðjumst við velvirðingar á því. Buið er að vinna bug á því vandamáli, svo nú er um að gera að senda okkur póst.
(3) Athugasemdir
Best of 2008 !
Sunnudagurinn 8. mars 2009 eftir aron
LOLLA Ljósmyndari er búin að eyða ómældum tíma í að setja upp "Best of 2008" myndaalbúm sem er samansafn af hennar bestu myndum frá sumrinu 2008! Kíkið í myndaalbúmið og skoðið meistaraverkin!

(3) Athugasemdir
Ţrekćfing á morgun!
Mánudagurinn 2. mars 2009 eftir aron
Fyrsta þrekæfing mánaðarins fer fram á morgun, þriðjudaginn 3.mars klukkan 20:00 í Fákafeni 11. Keyrt er upp ramp við hliðina á Videoheimum er þetta því á "annari hæð". Mæting í Söngskóla Maríu Bjarkar 10-15 mínútum fyrir átta því við leggjum af stað á slaginu átta. Við byrjum á því að fara út að skokka og taka nokkrar upphitunaræfingar í 20-30 mínútur og förum svo inní sal í þrekhring. Komið því með bæði hlý útiföt, og inniföt. Það er í lagi að vera í sömu skónum inni og úti. Verð fyrir námskeiðið í heilan mánuð er 6.900 kr,- og greiðist það á æfingunni á morgun, en einnig er hægt að leggja inná reikninginn okkar, með skýringu með nafninu ykkar.
Reikningsnúmer: 515-26-390092
kennitala: 050877-3969
Sjáumst hress og kát á morgun.
Kv. Aron & Össi
(2) Athugasemdir
Gjafabréf.
Sunnudagurinn 1. mars 2009 eftir aron
Efst á síðunni undir "Gjafabréf" geta viðskiptavinir Motocross Skólans keypt gjafabréf í skólann. Það eina sem þið þurfið að gera, er að fylla í alla reitina og smella á "senda skráningu". Við höfum svo samband við ykkur um leið og skráningin berst, og innan örfárra daga fáið þið gjafabréfið sent heim til ykkar! Einfaldara gæti það ekki verið!
(1) Athugasemdir
Nýtt Nýtt Nýtt
Sunnudagurinn 1. mars 2009 eftir aron
Nú geta þeir sem skoða síðuna skrifað athugasemdir við fréttirnar. Við biðjum samt alla um að vera kurteis og skrifa undir nafni.

(3) Athugasemdir
Hjólaferđ til Ólafsvíkur!
Fimmtudagurinn 19. febrúar 2009 eftir aron

Motocross Skólinn ætlar að fjölmenna til Ólafsvíkur á laugardaginn (21.feb) og hjóla í brautinni hjá strákunum fyrir vestan. Veðurspáin er frábær! 5 stiga hiti, 2m á sekúndu, engin rigning og léttskýjað. Nú er um að gera að skella sér vestur og taka á því í frábærri braut. Við ætlum að samferða vestur og ætlum við öll að hittast á N1 ártúnshöfða (eldra) klukkan 10 á Laugardagsmorgun.
Vonumst til að sjá sem flesta !!
(1) Athugasemdir
CrossFitness ađ hefjast!
Föstudagurinn 13. febrúar 2009 eftir aron

Þá er komið að því. CrossFitness námskeiðin eru að hefjast, og hefst fyrsta námskeiðið Mánudaginn 3.mars. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:00 - 21:30 og 14 manns komast á hvert námskeið. Námskeiðið er mánuð í senn og eru þetta því 8x skipti í mánuði. Námskeiðið fer bæði fram utan dyra sem innan. Námskeiðið verður kennt í Fákafeni 11 Skeifunni. Annað námskeið fer fram í apríl, en hægt er að skrá sig á bæði námskeiðin í einu. Skráning fer fram á mxs@mxs.is Verð og upplýsingar um námskeið er undir dálknum "námskeið" efst á síðunni.
(1) Athugasemdir
Síđa: 1 2 3 4 5 6 7 8 9