Aron Ómarsson. (aron@aron66.is ) Sími: 845-8660
Aron er landsþekktur motocross ökumaður og er búin að vera í bransanum í mörg ár.

Aron byrjaði að keppa í motocrossi 15 ára gamall og hefur verið í topp baráttu avleg síðan þá. Aron hefur tvo íslandsmeistara titla í þolakstri undir belti að bera, annarsvegar titil úr Baldursdeild árið 2005 og hinsvegar úr E1 Meistaradeild árið 2006. Mótosport Samband Íslands sendi í fyrsta skipti í sögu Motocrossins á Íslandi, frá sér landslið til að keppa á erlendri grundu árið 2007. Þrír ökumenn voru valdir í hópinn og var Aron einn af þeim. Slíkt hið sama var gert í fyrra en þá var Aron valinn aftur í liðið enda hefur hann yfir mikilli tækni og hæfileikum að búa sem fáir aðrir gera. Aron hefur yfir mikla reynslu í þjálfun og sótti m.a. námskeið til þjálfara hjá einum virtasta motocross skóla Bandaríkjanna síðasta vetur.



Örn Sævar Hilmarsson. (kawasaki@btnet.is ) Sími: 772-6262
Örn Sævar, eða Össi einsog flestir þekkja hann, hefur lengi verið í sportinu og er flestum ef ekki öllum kunnugur í sportinu. Össi hefur í gegnum árin verið einn atkvæðamesti líkmasræktar jötun sportsins og verið með styrktar, úthalds og allskyns líkamsræktar æfingar fyrir hjólafólk í áraraðir. Össi hefur sótt þjálfunarbúðir á Spáni og verið með einkakennslu fyrir motocross fólk undan farin ár. Össi er vel þekktur fyrir kunnáttu sína og vitneskju um allskyns æfingar og atriði sem þarf til að einstaklingar bæti frammistöðu sína á hjólinu.



Valdimar Þórðarson. (valdi270@gmail.com) Sími: 898 - 9993
Valdimar Þórðarson eða Valdi #270 einsog hann er þekktastur fyrir ættu allir hjólamenn að kannast við. Valdi hefur verið í sportinu lengur en flestir og má með sanni segja að hann sé hokinn af reynslu. Fyrrverandi landsliðsmaður í motocrossi og íslandsmeistari í Enduro eru helstu afrek Valda í sportinu en hann hefur einnig verið með Motocross námskeið fyrir íslendinga í nokkur ár. Það leikur engin vafi á því að Valdi býr yfir einni mestu reynslu okkar íslendinga hvað varðar motocross og enduro og er Motocross Skólinn stoltur af því að fá Valdimar í sínar raðir fyrir sumarið 2010.