Hérna fyrir neðan finnur þú nokkra fróðleiksmola í boði Motocross Skólans.


Rétt staða á hjólinu

1. Hvernig á ég að sitja á hjólinu?
Þú átt að sitja eins framarlega og þú kemst. Alveg upp við tankinn. Þú getur aldrei verið of
framarlega. Maður þarf náttúrlega að vera meðvitaður um aðstæður og maður aðlagar sig eftir
þeim þannig að þegar ég tala um að maður eigi alltaf að vera eins framarlega og hægt er þá máttu
ekki taka því bókstaflega og keyra alla brautina með tankinn í klofinu. En málið er bara að það er
auðveldara að færa sig aftur á bak en áfram þannig að vertu eins framarlega og þú getur.

2. Hvað með að standa?
Þú átt að standa eins mikið og hægt er. Helst ekki sitja nema í kröppum beyjum.

3. Hvernig eiga hendurnar að vera?
Þetta er MJÖG mikilvægt. Olnbogarnir eiga að vera hátt uppi og útstæðir eins og þegar við gerum
armbeygjur. Hversu hátt eiga olnbogarnir að fara? Eins hátt og þeir komast! Í raun þarfa þeir að
hærra uppi en þér finnst eðlilegt. Í beyjum skaltu reyna að hafa ytri olnbogann eins hátt og
mögulegt er. Æfðu þig í þessu og með tímanum hættir þú að hugsa um þetta og þetta verður
eðlilegt fyrir þér.

4. Hvað með lappirnar?
Flestir byrjendur sitja á hjólinu eins og þeir væru að setjast á bekk. Þetta er rangt! Við erum ekki
í PlayStation að spila MX leik. Lappirnar eiga að vera beygðar 45-gráður (þegar við sitjum við
matarborðið eru þær 90-gráður). Notaðu líka lappirnar til þess að grípa utan um tankinn á hjólinu.
Það er alger óþarfi að láta hendurnar bera allann líkamsþungan og í raun rangt. Með því að grípa
hjólið með löppunum minnkar álagið á hendurnar. (Sjá betri „Notum lappirnar rétt“ í Góð ráð)

5. Hvað með hausinn?
Þú átt að leiða með hausnum! Fremsti líkamsparturinn á að vera nefið. Prófaðu að líta niður þegar
þú ert að keyra – þú ættir að sjá stýrið beint fyrir neðan þig (og stundum ættirðu meira að segja
að geta séð númerið framan á hjólinu ...sjá mynd af Sebastian Tortelli). Þegar þú ert að sprengja
batta í beyjum ættir þú að hafa hausinn mjög framarlega og bakið bogið. Flestir eiga það til að
halla sér aftur í böttum en það er rangt! Með því að halla þér aftur ertu að taka þyngd af
framhjólinu sem þýðir minna grip og oft endar það með því að maður keyrir yfir battann og
út úr braut.

6. Hvað er ég er ekki í nógu góðu formi?
Málið er að ef þú hugsar rétt og reynir að vinna með hjólinu þá er þetta ekki eins erfitt og ætla
mætti. Ef þú fylgir „ráði númer 1“ og ert eins framarlega og þú kemst geturðu notað togkrafta
mótohjólsins til að færa þig. Tökum dæmi: Þú nálgast beyju standandi. Þegar þú bremsar færist
þyngdin fremst á hjólið. Láttu þetta afl færa þig fremst á hjólið. Ef þú ert framarlega á hjólinu
þegar þú kemur á gjöfinni út úr beyjunni ýtir hjólið þér áfram með sér í stað þess að toga í
hendurnar á þeim sem eru of aftarlega. Þegar þú svo kemur út úr beygjunni viltu standa sem
fyrst aftur upp. En þú eyðir orku í það að standa upp. Bíddu eftir „hossu“sem hendir þér upp og
notfærðu þér það til að færa þig í standandi stellingu.

7. Hvað ef ég sit þegar framarlega?
Fæstir sitja nógu framarlega, jafnvel þótt þeir haldi það, en ef þú ert einn þeim vertu þá stoltur.
En reyndu samt sem áður að setja alla þessa punkta saman í einn.
(1) Vertu eins framarlega og hægt er.
(2) Mundu að standa þegar þú ert ekki að beyja.
(3) Olnbogar upp, sérstaklega ytri olnboginn í beyjum.
(4) Ekki setjast fyrr en á síðustu sekúndu fyrir beyju. Reyndu svo að standa upp eins flótt og
hægt er út úr beyjunni. (5) Vertu boginn í löppunum. Lappirnar eru burðar ásarnir þínir á hjólinu.
Notaðu þær til að standa, færa þig til, halda jafnvægi og gripa tankinn.Og að lokum er gott fyrir
okkur úthaldslausa íslendinga að muna það að með því að keyra hjólið rétt eyðum við miklu
milku milklu minni orku!


Lappirnar

1. Þegar þú setur löppina út á hún að fara beint upp og meðfram hjólinu en EKKI út til hliðar.
Ef þú setur löppina út til hliðar ertu að auka líkurnar á meiðslum.

2. Ekki stíga niður í beyjum. Af hverju? Vegna þess að þú breytir þyngdarpunktinum með því.
Í stað þess að hafa allann þungann á tveimur hjólum (tveir punktar) með gott grip bætirðu við
3ja punktinum og raskar þar með jafnvæginu og við það missa dekkin grip og allt fer í rugl.

3. Við erum ekki á skíðum! Lappirnar eru jafnvægisstangir líkt og þegar menn labba á línu nota
þeir langa stöng til að dreyfa þyngdinni eftir þörfum. Undir engum kringumstæðum ætti löppinn að
„slæda“ ofan á jarðveginum. Ef þú rekur löppina óvart niður skaltu lifta henni strax aftur upp.

4. Maður á aldrei að hafa löppina það beina að hún fer í lás. Þú átt alltaf að hafa smá beyju á
liðamótunum. Þetta gerum við til þess að löppin geti gefið eftir og tekið á móti höggi án þess
að eyðileggja hnéin á okkur.

5. Þegar við erum að klára beyjuna er best að draga löppina beint til baka og setja hana á
fótstigið sem fyrst.

6. Það er bannað að draga lappirnar á eftir sér. Með því að draga þær eigum við það á hættu að
keyra yfir þær, snúa upp á hnéið eða setja öklan í afturgjörðina ...sem er ekki gott