Motocross Skólinn var stofnaður þann 9.Janúar 2009 af þeim Aroni
Ómarssyni og Erni Sævari Hilmarssyni. Þeir Aron og Örn höfðu verið æfingar félagar um nokkurt skeið þegar þeir ákváðu að halda sitt fyrsta motocross námskeið saman á Akranesi sumarið 2008. Námskeiðið varð uppbókað á örfáum dögum og tókst námskeiðið svo gríðarlega vel að strax var herjað á þá félaga að halda annað námskeið um hæl. Gríðalega mikið af fyrirspurnum komu uppá borðið í kjölfarið af fyrsta námskeiðinu og brugðu þeir því á það ráð að stofna Motocross Skólann til að miðla sinni reynslu til fleirri torfæruhjóla iðkenda á Íslandi. Skólinn inniheldur ekki einungis Motocross námskeið, heldur verður mikið gert útá Enduro námskeið fyrir unga sem aldna, stelpu námskeið, byrjendanámskeið, krakka námskeið og líkamsræktar námskeið sem eru stútfullt af æfingakerfum sem koma þér í rétta formið fyrir átökin á hjólinu.